Heimasíða 6. bekkjar

Grunnskóli Eskifjarðar  2007 - 2008

 

Forsíða

Nemendur

Kennarar

Heimanám

Skólastarfið

Foreldrar

Myndir

 

 

Fréttir

26. maí

Það er búið að vera frábært veður í dag og nýttum við okkur það vel til útikennslu. Krökkunum var skipt niður í þrjá hópa sem fóru út og mældu há tré í nágrenni skólans með aðferð sem við vorum að prófa í fyrsta skipti. Spyrjið endilega krakkana að því heima hvernig þau fóru að þessu. Krakkarnir mældu svo líka trén sín uppi við Melbæ og unnu verkefni þar tengd trjánum.

Eftir frímínútur var svo farið í gönguferð með 2. bekk út á Mjóeyri þar var nestið snætt og krakkarnir fengu að leika sér í fjörunni.

22. maí

Krakkarnir fóru heim með flottu húfurnar sínar í dag og í tilefni af því var myndataka.

Flottir krakkar með flottar húfur!

 

 

 

 

 

 

 

    Á morgun ætla krakkarnir svo að heimsækja skólavini sína í Dalborg.
 

20. maí

Í dag komu skólavinirnir úr leikskólanum í heimsókn og skiptust á myndum við krakkana í 3. bekk. Krakkarnir spiluðu við svo, borðuðu saman nesti og léku sér. Heimsóknin gekk mjög vel.

 

19. maí

Í dag var hringekja þar sem krakkarnir héldu áfram að læra um dýrin, byrjuðu að sauma saman húfurnar og unnu í stærðfræði. Þau kíktu líka á paprikuræktina og eru flest fræin farin að koma upp. Einnig unnum við í skrift.

Á morgun koma svo elstu krakkarnir á leikskólanum í heimsókn en krakkarnir í 3. bekk verða skólavinir þeirra. Á morgun fá allir að hitta sína skólavini, krakkarnir skiptast á myndum og leika sér saman.
 

16. maí

Heilsudagur

Í dag var heilsudagur og fóru krakkarnir á yngsta stigi í útileikja-hringekju á skólavellinum. Boðið var upp á 8 leikjastöðvar sem allir fengu að prófa. Áður en krakkarnir fóru heim bauð skólinn upp á ávexti og grænmeti í tilefni dagsins.    

 

14. maí

Við fórum inn í hesthús í dag í sambandi við verkefni sem við erum að vinna um íslensk dýr. Í hesthúsunum sáum við hesta og folald, kindur og lömb. Allir fengu að fara á hestbak og sáu Eiríkur og Björgvin um að teyma undir krökkunum.

Við þökkum þeim kærlega fyrir frábærar móttökur.

 

13. maí

Í dag var bekkjarfundur, sóknarskrift og hópavinna þar sem viðfangsefnin voru textil, púsl og tilraun.

7. maí

Við byrjuðum daginn á því að fara út í góða veðrið. Krakkarnir unnu tvö og tvö saman og teiknuðu skuggann sinn á malbikið. að því loknu kíktu krakkarnir á trén sín en það er nokkuð langt síðan við höfum farið og skoðað trén og það var gaman að sjá að öll trén eru farin að lifna við og  brum byrjað að opnast eftir veturinn. Eftir frímínútur fórum við í boltaleikinn Hollý-hú sem vakti mikla lukku. Áður en við fórum inn í nesti var skugginn teiknaður aftur á sama stað og um morguninn og athugað hvað hafði gerst.
    

Eftir nesti fór helmingur bekkjarins á bókasafnið og hinn helmingurinn sáði paprikufræjum, hóparnir skiptu svo eftir frímínútur. Næstu daga fylgjast krakkarnir með plöntunum sínum vaxa og fá svo að fara með þær heim seinna í maí.

 

5. maí

Í dag byrjuðum við á nýju verkefni um dýr. Krakkarnir unnu í hópum, þau fengu myndir af nokkrum dýrum og áttu að finna nöfn þeirra og hvað þau ættu sameiginlegt. Allir fengu svo að velja sér eitt dýr sem þau kynna sér nánar á næstu dögum.

Einnig rifjuðum við upp að jörðin er byggð upp af kjarna, möttli, jarðskorpu, hafi og lofthjúp. Einnig ræddum við aðeins um eldfjöll og jarðskjálfta og æfðum möguleg viðbrögð ef við lentum í jarðskjálfta.

 

 

 

 

 

Eldri fréttir

Tilkynningar

2008


Júní

04.06
Skólaslit
-Sumarfrí hefst-

2.-4.06
Vordagar

Maí

30.05
Síðasti kennsludagur

28.05
Danssýning kl. 11:00

16.05
Heilsudagur

Mars

26.03
Kennsla hefst eftir páskafrí

25.03
Starfsdagur kennara
-frí hjá nemendum-

15.-24.03
Páskafrí

13.03
Vorskemmtun

Febrúar

27.02
3. önnin hefst

25.-26.02
Vetrarfrí

22.02
Annarlok
-foreldraviðtöl-

14.02
Þorrablót
1.-5. bekkur

~~*~~

Janúar

08.-17.01
Lestrarátak

07.01
Nemendur mæta
til kennslu

 

Vefumsjón:Sóley Orradóttir                                             

Síðast uppfært:  26.05.2008 15:47

Budweiser