Bekkjarfjör í boði 3. og 4. bekkjar

Þennan mánuðinn sáu nemendur 3. – 4. bekkjar um bekkjafjörið okkar.  Dagskráin var glæsileg hjá krökkunum, sögur lesnar og myndir sýndar, sungið, brandarar sagðir og dansað. Þarna eru margir hæfileikaríkir nemendur sem stóðu sig með miklum sóma.