Á
morgun, miðvikudaginn 30. nóvember, verður
spurningakeppni grunnskólanna hér fyrir austan haldin í
Grunnskólanum á Egilsstöðum. Hefst keppnin kl. 18:30.
Jón Svanur kennari hefur æft þá nemendur sem best stóðu
sig í undankeppni okkar og valið þá þrjá sem fyrir okkar
skóla keppa. Það eru þau Heimir 9.b, Aron 9.b og
Sigríður 10.b sem verða okkar fulltrúar. Það verða síðan
fjórir nemendur í startholunum ef einhver heltist úr
lestinni en það eru Ásbjörn 8.b, Friðný 9.b, Veiga Petra
10. b og Arndís 10.bekk. Nemendurnir hafa allir lagt sig
mikið fram við æfingar og óskum við þeim alls hins
besta.