Söngkrakkar
í 4.bekk
Það eru
margir frábærir söngkrakkar í 4. bekknum okkar. Þórhallur
tónmenntakennari æfði 4. bekkingana mjög vel á haustmánuðum og í
desember fékk hann Daníel Arason tónlistarkennara með sér í lið
og spilaði hann undir söng nemenda við upptökur á sjö lögum en
upptökur fóru fram í kirkjunni. Krakkarnir fóru stoltir heim með
diskinn sinn sem við fjölfölduðum handa þeim undir nafninu
Poppkrakkarnir. Þetta var skemmtilegt framtak sem tókst afar
vel. Hér að neðan má sjá þennan flotta hóp upprennandi söngvara.
