Skólanum
barst góð gjöf nú í byrjun árs. Safn okkar af uppstoppuðum
dýrum stækkaði þegar myndarlegur skarfur bættist í hópinn. Það
voru þau Bentína Gylfadóttir og Pétur Georgsson sem færðu
skólanum þennan myndarlega fugl að gjöf. Nemendur hafa sýnt
þessum nýja fugli okkar mikla athygli og hafa fræðst um nánar um
hann. Við þökkum fyrir gjöfina, hún kemur sér vel og setur svip
á flóru okkur í náttúrufræðinni.
