Innra mat Grunnskóla Eskifjarðar 2010-2011
Í 36. grein laga um grunnskóla númer 91/2008 segir að sérhver grunnskóli skuli meta með kerfisbundnum hætti skólastarfið, þar á meðal kennslu- og stjórnunarhætti, samskipti innan skólans og tengsl við aðila utan skólans. Grunnskóli Eskifjarðar hefur undanfarin ár unnið markvisst að innra mati skólans.
Með innra mati á öllu starfi skólans er unnið að því að endurskoða og meta skólastarfið jafnt og þétt og gera umbætur í framhaldi af því. Mikilvægt er að skólastarfinu sé vörðuð leið að þeim markmiðum sem aðalnámskrá og skólanámskrá segja til um. Einnig er innra mat mikilvægt til að auðvelda forgangsröðun þeirra verkefna og umbóta sem fyrir liggja og efla þá styrkleika sem fram koma í mati á skólastarfinu.
Stefna skólans sem grundvölluð er í fjórum orðum: Virðing, þekking, færni og áræðni” og hafa starfsmenn skólans þau orð að leiðarljósi í starfi sínu.
Í þessari áfangaskýrslu, sem unnin var vorið 2011, er fjallað um innra mat Grunnskóla Eskifjarðar og lögð fram aðgerðaáætlun fyrir næsta skólaár. Það var hópur um innra mat sem vann að þessu verkefni og skipulagði framhaldsvinnuna.
Markmiðið með þessari vinnu er að bæta enn frekar skólastarfið og gera góðan skóla betri.