Merkingar á eigum nemenda
Við
viljum sérstaklega biðja foreldra að merkja eigur barna sinna vel.
Sérstaklega á þetta við um fatnað og skó svo og stílabækur, möppur
og aðra þá hluti sem nemendur nota. Góðar merkingar koma í veg
fyrir vandamál sem geta skapast þegar hlutir eru teknir í misgripum.
Hádegisverður
Öllum
nemendur stendur til boða að fá hádegisverð í skólanum gegn vægu
gjaldi. Hver máltíð kostar nú 414 krónur.
Fyrsta
skóladag nú í haust fá nemendur heim með sér nánari upplýsingar um
fyrirkomlag matarmála og eru forráðamenn vinsamlegast beðnir, að
þeim upplýsingum fengnum, að merkja við ef þeir vilja að, börn þeirra
verða í mat þannig að við getum byrjað strax að veita þessa
þjónustu.